• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Það besta úr héraði á Hótel Eddu 2010

Hótel Edda hefur gengið til samstarfs við hjónin Friðrik Val Karlsson og Arnrúnu Magnúsdóttur, sem áður ráku veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri. Friðrik og Arnrún munu í sumar vinna náið með Edduhótelunum 13 sem starfrækt eru á landsbyggðinni að frekari þróun veitingastaða hótelanna. Markmið samstarfsins er að efla enn frekar áherslu Eddu hótelanna á íslenska matargerð og hefðir, og munu hótelin njóta góðs af leiðsögn Friðriks Vals og nálgun hans á notkun íslensks hráefnis úr hverju héraði fyrir sig.

Það besta úr héraði á Hótel EdduHjónin Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir stofnuðu veitingastaðinn Friðrik V árið 2001. Friðrik er útskrifaður frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1993. Friðrik sérhæfir sig í að elda úr fersku íslensku hráefni á nútíma, evrópska vísu, og hefur hann getið sér gott orð fyrir "túlkun" sína á íslensku hráefni og matarhefðum.

Eddu hótelin hafa ávalt lagt áherslu á að nýta það hráefni sem finna má úr nágrenni hvers hótels fyrir sig í sinni matargerð, og kynna þannig íslenska ferskvöru og matarhefðir fyrir erlendum gestum hótelanna, við góðan orðstír. Í samstarfi við þau hjónin munu hótelin nú leggja áherslu á að skerpa enn frekar á sérstöðu hvers og eins hótels, og draga fram helstu eiginleika íslenskrar náttúru og síns nánasta umhverfis í sinni matargerð.

Edduhótelin hafa fyrir löngu unnið sér sess sem hagkvæmur og þægilegur gistimáti á ferðalögum um Ísland. Nú eru starfrækt þrettán Edduhótel vítt og breitt um landið og er sérhvert þeirra í námunda við einhverjar af helstu náttúruperlum landsins.

Eddu hótelin bjóða hjónin Friðrik Val og Arnrúnu innilega velkomin á Edduhótelin í sumar. Starfsmenn hótelanna munu taka vel á móti þeim hjónum, og hlakka til að njóta góðs af fagmennsku þeirra og áralangri reynslu. Við bjóðum jafnframt alla ferðalanga á ferð um Íslands velkomna á veitingastaði Eddu hótelanna í sumar. Það er okkur tilhlökkunarefni að bera með stolti á borð íslenskan mat, framreiddan af fyrsta flokks fagmennsku á alþjóðavísu.

Sjá má dagskrá Friðrik V á Hótel Eddu í sumar með því að smella hér

Skrifa ummæli

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
CAPTCHA
This question is for testing whether you are a human visitor and to prevent automated spam submissions.
Image CAPTCHA
Enter the characters shown in the image.
Inspired by Iceland